top of page
  • Facebook
  • Instagram

Bretland UK

Bretland er þekkt fyrir rótgróna sjónvarpshefð og veitir fjölbreytta dagskrá sem nær til allra aldurshópa. Með stöðvum eins og BBC, ITV, Channel 4, MY5 og Sky News er hægt að nálgast gæða sjónvarpsefni sem hefur markað spor í menningu og skemmtanaiðnaði heimsins. Þessar stöðvar bjóða upp á fjölbreytt efni - allt frá leiknum þáttum og raunveruleikaþáttum til spennu og fréttaefnis. 

Ef þú ert að skrá þig í fyrsta sinn í erlendar streymisveitur þá greiðist einungis 160 GBP einu sinni fyrir uppsetningu og aðgang. Allir viðskiptavinir þurfa að vera með grunnáskrift sem kostar 23 GBP á mánuði og leiga á Roku myndlykli kostar 2.790 kr. Hægt er að byggja ofan á grunnáskriftina viðbótarpökkum og sérlausnum sem hentar þínum þörfum.

SJÓNVARPSPAKKAR UK

GRUNNÁSKRIFT - 6.640 kr

  • Allur nauðsynlegur búnaður innifalinn

  • Aðgangur að öllum stöðvum BBC, ITV, Channel 4 og My5

  • Sky News fyrir beinar fréttir allan sólarhringinn

  • Roku Channels með fjölbreyttu úrvali efnis

  • Tímaflakk – horfðu þegar þér hentar

  • VOD – fjöldi þátta og mynda á þínum eigin hraða

ENTERTAINMENT - 9.99 GBP

Með Entertainment pakkanum frá NOW TV færðu aðgang að yfir 15 sjónvarpsstöðvum með fjölbreyttu efni án langtímasamninga. Innifalið eru vinsælustu stöðvarnar og þáttaraðir sem allir eru að tala um:

  • Sky Atlantic – heimili drama og spennu.

  • Sky Max – spennandi nýjar þáttaraðir, gaman- og skemmtiefni.

  • Sky Showcase – samansafn af því besta úr Sky stöðvunum.

  • Plús fjöldi annarra gæðastöðva með drama, raunveruleikaþáttum og heimildarmyndum.

Þetta er fullkomin viðbót við grunnáskriftina fyrir þá sem vilja fá aðgang að nýjustu og vinsælustu þáttunum þegar þeim hentar.

CINEMA - 9.99 GBP

Með Cinema pakkanum frá NOW TV færðu aðgang að yfir 11 kvikmyndastöðvum og meira en 1000 kvikmyndum á hverjum tíma – með nýjum titlum bætt við í hverri viku.

  • Nýjustu bíómyndirnar – beint úr kvikmyndahúsum.

  • Hollywood klassískar sem klikka aldrei.

  • Fjölskyldumyndir fyrir kvöldstundina með öllum.

  • Spennumyndir, drama, gamanmyndir og heimildarmyndir. Eitthvað fyrir alla.

  • Þetta er viðbótarpakkinn fyrir kvikmyndaunnendur, sem vilja hafa úrval kvikmynda í hágæðum, hvar og hvenær sem er.

HAYU - 6,00 GBP

Hayu er streymisveita sem sérhæfir sig í raunveruleikaþáttum og með aðgangi í gegnum NOW TV færðu hundruð þátta og seríur beint frá Bandaríkjunum.

Innifalið eru m.a.:

  • Keeping Up with the Kardashians og fjöldi annarra vinsælla “reality” þáttaraða

  • Bravo Real Housewives seríurnar – allar borgirnar og alltdramað.

  • True Crime þáttaraðir sem halda þér límdum við skjáinn

  • Nýjustu þættirnir birtast oft sama dag og í USA

Hayu er fullkominn pakki fyrir þá sem elska drama, skemmtun og raunveruleikaþætti. Alltaf aðgengilegt, hvar og hvenær sem er.

SPORTS - 34.99 GBP

​Sky Sports er stærsta íþróttastreymið í Evrópu og býður yfir 11 sérhæfðar íþróttastöðvar. Þar færðu allar helstu íþróttir í beinni útsendingu, með hágæða mynd og lýsingu.​

Með Sky Sports færðu íþróttirnar sem skipta máli þegar þær gerast.

TNT SPORTS - 30,99 GBP

TNT Sports býður upp á úrval beinna útsendinga frá stærstu íþróttaviðburðum heims – með fókus á evrópska knattspyrnu og bardagaíþróttir.​

​​

Með TNT Sports færðu meira af evrópskum fótbolta og alþjóðlegum viðburðum beint heim í stofu.

HD BOOST - 9,00 GBP

Með HD Boost færðu afþreyinguna þína í háskerpu (Full HD 1080p) með skýrari mynd, bjartari litum og betra hljóði. Þetta gerir áhorfið enn raunverulegra – hvort sem þú ert að horfa á íþróttir, kvikmyndir eða þætti.

Innifalið með HD Boost:

  • Full HD 1080p myndgæði á öllum rásum og VOD efni

  • Betri hljóðgæði fyrir skýrari samtöl og öflugra umhverfishljóð

  • Notar fleiri tæki samtímis (allt að 3 tæki á sama tíma)

  • Auðveld viðbót við grunnáskrift og aðra pakka

HD Boost er fullkomin uppfærsla fyrir þá sem vilja bestu upplifunina, hvort sem það er stórleikur, kvikmyndakvöld eða dramaþáttur sem allir tala um.

bottom of page