Scolia Fliq – taktu online píluspilið á næsta stig
Scolia Fliq er snjöll viðbótarmyndavél fyrir Scolia sem gerir online píluspilið enn skemmtilegra og persónulegra. Myndavélin snýr að spilaranum og gerir mótspilara kleift að sjá þig á meðan leik stendur, rétt eins og þið væruð að spila saman í sama herbergi.
Fliq er hönnuð sérstaklega fyrir Scolia og fellur snyrtilega inn í uppsetninguna. Hún festist á Scolia-kerfið og býður upp á beina myndsendingu.
Helstu eiginleikar
Live mynd af spilaranum í online leikjum
Hannað sérstaklega fyrir Scolia
Lítil töf á myndsendingu
Einföld og snyrtileg uppsetning
Frábær viðbót fyrir þá sem spila reglulega online
Gerir online leiki persónulegri og líkari hefðbundnum píluleik augliti til auglitis
Meira en bara stig á skjánum
Scolia sér um að halda utan um köstin – Fliq bætir spilaranum við upplifunina. Þú sérð mótspilarann og hann sér þig, sem skapar skemmtilegri stemningu hvort sem um er að ræða æfingaleik, keppni eða leik við vini.
Ertu með Scolia og spilar online? Þá er Fliq viðbót sem fullkomnar uppsetninguna.












