Scolia Stealth Surround er vandaður verndarhringur fyrir píluspjaldið sem sameinar góða vernd og einstaklega stílhreint útlit. Hann passar þétt utan um píluspjaldið og gefur Scolia uppsetningunni snyrtilegt og fullbúið yfirbragð.
Verndar meira en bara vegginn
Það kemur fyrir alla að pílan fari fram hjá spjaldinu. Þá skiptir máli hvað tekur við.
Í stað þess að pílan skelli í vegginn eða falli niður á gólf grípur Scolia Stealth verndarinn píluna. Þannig verndar hann ekki aðeins vegginn heldur hjálpar einnig til við að verja pílurnar sjálfar fyrir óþarfa höggum og skemmdum.
Það getur skipt sérstaklega miklu máli þegar spilað er með vandaðar pílur, þar sem endurtekin högg í vegg eða hart gólf geta farið illa með pílurnar.
Einföld og snyrtileg uppsetning
Stealth Surround er settur utan um píluspjaldið og fellur snyrtilega að uppsetningunni. Svört og látlaus Stealth-hönnunin passar sérstaklega vel með Scolia og gefur píluaðstöðunni faglegt yfirbragð.
Helstu kostir
Verndar vegginn fyrir pílum sem fara fram hjá spjaldinu
Grípur pílurnar í stað þess að þær skelli í vegg eða gólf
Hjálpar til við að vernda pílur, odda, leggi og fjaðrir
Þétt og endingargott efni
Stílhrein Stealth hönnun
Passar einstaklega vel með Scolia uppsetningu
Einföld uppsetning
Gefur píluaðstöðunni snyrtilegt og fullbúið útlit
Scolia Stealth Surround verndar ekki bara umhverfið í kringum píluspjaldið – hann hjálpar líka til við að passa upp á pílurnar þínar.












