Tuscan Black er svört útgáfa af hinni vinsælu Tuscan línu frá Winmau. Barrelið er úr 90% tungsten, með Razor gripi og svartri húð sem gefur nútímalegt útlit.
Þetta eru vandaðar pílur á góðu verði.
Winmau Tuscan Black 90% hafa sömu eiginleika og upprunalegu Tuscan pílurnar en eru með svartri húð sem gefur nútímalegt og áberandi útlit. Pílurnar henta leikmönnum á öllum getustigum.
Barrelið er úr 90% tungsten og því grannt, svo pílurnar raðast þétt saman í skífunni. Razor gripið er einkennandi fyrir Tuscan. Það gefur gott jafnvægi milli grips og stjórnar, svo pílan liggur vel í hendi og kastið verður stöðugra. Þyngdin liggur í miðjunni og nefið er slétt og mjókkar fram.
Í pakkanum eru tvö sett af sköftum og þrjú sett af fjöðrum. Þú getur því prófað þig áfram eða átt varahluti til taks.
Í pakkanum:
3 steel tip pílur
2 sett af Winmau Prism Force sköftum (nylon, medium 48 mm)
3 sett af Winmau Prism No.2 fjöðrum (100 micron, standard lögun)
Tæknilýsing:
Framleiðandi: Winmau
Efni: 90% tungsten
Þyngdir: 21 g, 22 g, 23 g, 24 g
Barrel lengd: 48,26 mm
Barrel breidd: 6,7 mm
Lögun: Bein
Jafnvægi: Þyngd í miðju
Grip: Razor, 3/5, eftir öllu barrelinu
Nef: Slétt og mjókkandi
Litur: Svartur








