Glæsilegt og vandað segultafl sem sameinar klassíska hönnun og hagnýta eiginleika. Taflið er lagt fallegu mahóní og hlynvið, sem gefur því hlýlegt og tímalaust yfirbragð sem sómir sér jafnt heima í stofu sem í sumarbústað eða á ferðalagi.
Segultaflmenirnir eru úr við (Schima superba), fallega útskornir og í klassískri keppnis–Staunton hönnun. Seglarnir tryggja að taflið haldist á sínum stað, jafnvel þegar teflt er á ferðinni.
Taflið er nett í stærð (31 x 31 cm) og því auðvelt að taka með sér, en nógu rúmgott til að tryggja góða yfirsýn og þægilegt tafl. Fullkomið fyrir þá sem vilja vandað tafl með klassísku yfirbragði og auknu öryggi sem seguleiginleikarnir veita.
Upplýsingar:
Stærð taflborðs: 31 x 31 cm
Reitastærð: 35 mm
Efni (menn): Viður – Schima superba
Þyngd: 0,90 kg
Áferð: Mahóní (Sapele) og hlyn
Falleg og vönduð taflvara sem hentar bæði byrjendum og reyndum skákmönnum og er jafnframt fallegt skraut á hverju heimili.
























