Með þessum úrvals pílupakka færðu alvöru keppnisaðstöðu – tilbúna til uppsetningar heima, í klúbbnum eða í vinnunni. Hér er ekkert hálfkák – aðeins toppbúnaður sem sameinar nákvæmni, tækni og faglega upplifun.
Innihald pakkans:
Blade 6 Triple Core 360° – PDC keppnisspjald
Eitt fullkomnasta píluspjald heims í dag. Þríkjarna tækni fyrir hámarks endingargæði, þétt sisal og óviðjafnanlega nákvæmni. Sama gæðastig og notað er á stærstu mótum heims.
Scolia Home 2 m/ ljósi – Sjálfvirk talning
Háþróað kerfi sem greinir staðsetningu pílunnar á sekúndubroti. Engin handvirk talning – bara kasta og spila. Skuggalaus, jöfn 360° lýsing sem tryggir fullkomið skyggni við hvert einasta kast. Fullkomið fyrir þá sem vilja faglega upplifun og meiri spilagleði.
PDC Verndari
Verndar bæði veggi og pílur, dregur úr skemmdum og gefur uppsetningunni snyrtilegt og faglegt útlit.
Pro Zone Blade 6 Motta
Mottan er slitsterk og hagnýt lausn fyrir alla píluspilara. Hún verndar bæði gólf og pílur, tryggir rétta kastfjarlægð og hentar jafnt byrjendum sem lengra komnum spilurum.
Target Exo 01 Swiss Point 90% 23g - Pílusett
Hágæða pílur úr 90% tungsten sem bjóða upp á framúrskarandi jafnvægi og nákvæmni. Swiss Point kerfið gerir auðvelt að skipta um odda og hentar jafnt metnaðarfullum áhugamönnum sem reyndum spilurum.
Target Diamond Pro Silver - 35mm
Sterkir og endingargóðir píluoddar með demantsáferð sem veitir aukið grip og stöðugleika í spilun. Þeir eru hannaðir fyrir nákvæmni og auðvelda festingu í spjaldinu, sem gerir þá að frábærum valkosti fyrir bæði æfingar og komna.
Target Japan K-Flex Harith - 26mm
Vandað og endingargott "Fusion" sem er innbyggð fjöður á legg sem veitir stöðugleika og betri flugeiginleika í hverju kasti. Létt og sveigjanleg hönnunin hjálpar til við að draga úr fráköstum og hentar jafnt keppnisspilurum sem áhugafólki.
Af hverju að velja þennan pakka?
✔ Allur toppbúnaður á einum stað
✔ Sparar tíma og peninga miðað við að kaupa allt stakt
✔ Fljótleg og einföld uppsetning
✔ Hentar bæði byrjendum og keppnisspilurum
✔ Skapar alvöru mótsstemningu heima hjá þér
Alvöru heildarlausn fyrir þá sem vilja gera þetta almennilega.
top of page
274.930 kr. Regular Price
249.990 kr.Sale Price
Söluhæstu vörurnar
bottom of page






















