Þetta er ein einfaldasta skákklukkan með bónustíma (increment) á markaðnum. Hún er einstaklega auðveld í stillingu og notkun, ýttu einfaldlega á + eða – til að velja leiktíma og leikurinn getur hafist.
Þrátt fyrir nett form er klukkan með stóran og skýran skjá með greinilegum tölustöfum sem auðvelt er að lesa í leik. Hún tekur ekki mikið pláss með einungis 4,2 cm breiðan botn, og fellur því vel að hvaða taflborði sem er.
Klukkan gengur fyrir einni rafhlöðu (fylgir með) og kemur með 2 ára ábyrgð.
Með bónustíma tryggir þú jafna og sanngjarna tímastjórnun – fullkomið fyrir æfingar, kaffistofuna og heimilisnotkun.
Helstu eiginleikar
- Bónustími (increment)
- Einföld stilling með + / – tökkum
- Stór og skýr skjár
- Nett og plásssparandi hönnun
- Mál: 155 x 42 x 60 mm
- 1 x rafhlaða (fylgir með)
- 2 ára ábyrgð
Þetta er hagkvæm, áreiðanleg og einstaklega notendavæn skákklukka.
Skákklukka - ISLDGT1002
8.990krPrice
























