Ný kynslóð af pílunum hans Raymond van Barneveld, fimmfalds heimsmeistara og einnar mestu goðsagnar pílunnar. G6 eru úr 95% tungsten, sem gerir pílurnar grannar og þéttar svo auðveldara er að hitta nálægt hver annarri í sama reit.
Pílurnar eru beinar með þyngdinni í miðjunni, sem gefur jafnt og stöðugt kast. Gripið er blanda af rifflum, fræsingu og hringjum eftir allri pílunni, með grófu gripi fremst, svo þær liggja vel í hendi hvort sem þú heldur framarlega eða aftarlega.
Swiss Point oddarnir eru útskiptanlegir og haldast vel í spjaldinu. Fallegt svart og gyllt útlit.
- 95% tungsten
- Beinar, miðjuþungar (centre weighted)
- Lengd: 51 mm · Breidd: 6,7 mm
- Target Swiss Point útskiptanlegir oddar
- Þyngd: 25g
- Í pakkanum: 3 pílur, 3 leggir og 3 fjaðrir








