top of page
  • Facebook
  • Instagram

Winmau Blade X er nýjasta flaggskipið frá Winmau og opinbert keppnisspjald PDC – stærstu atvinnumótaraðar í píluheiminum.

 

Spjaldið er hannað fyrir hæstu gæði, hámarks nákvæmni og lengri endingu en flest önnur píluspjöld á markaðnum í dag.

 

Blade X er af mörgum talið eitt fullkomnasta píluspjald sem framleitt hefur verið, með nýrri Pro Core tækni, dýpri sisal trefjum og einstaklega þunnri vírahönnun sem minnkar fráköst og eykur skor verulega.

 

Spjaldið er framleitt úr hágæða afrískum sisal trefjum með yfir 5,5 milljónum trefja í hverju spjaldi. Dýpra trefjalagið tryggir betri upptöku höggs, meiri stöðugleika og framúrskarandi sjálfgræðslu sem lengir endingartímann til muna.

 

Hin nýja ultra-thin víratækni er allt að 60% þynnri en í eldri gerðum og er hönnuð með 60° hornum sem beina pílunum inn á skorsvæðið í stað þess að kasta þeim út. Þetta skilar færri bounce-out og meiri nákvæmni í leik.

 

Helstu eiginleikar

  • Opinbert PDC keppnisspjald
  • Eitt fullkomnasta píluspjald á markaðnum í dag
  • 13% dýpra sisal lag fyrir meiri endingu og stöðugleika
  • Ultra-thin vírahönnun sem minnkar fráköst
  • Premium afrískt sisal með sjálfgræðandi eiginleikum
  • Laser-skorið númerakerfi sem hægt er að snúa 360°
  • Hentar bæði atvinnumönnum og metnaðarfullum spilurum

 

Ef þú vilt spila á sama spjaldi og notað er á stærstu atvinnumótum heimsins þá er Winmau Blade X eitt allra besta valið í dag.

 

Winmau Blade X - Fullkomnasta píluspjald í heimi

34.990 kr.Price
Quantity
    bottom of page