top of page
  • Facebook
  • Instagram

Bandaríkin USA

Bandaríkin eru heimili stærstu streymisveitanna í heiminum, sem bjóða upp á óviðjafnanlegt úrval af kvikmyndum, sjónvarpsþáttum og íþróttum. Með þjónustum eins og Hulu, Peacock og Paramount+ eða Sling og ESPN+ færðu alltaf nýjasta efnið, sígilda titla og fjölbreytni fyrir alla fjölskylduna. Alllt á einum stað.

Ef þú ert að skrá þig í fyrsta sinn í erlendar streymisveitur þá greiðist einungis 160 GBP einu sinni fyrir uppsetningu og aðgang. Allir viðskiptavinir þurfa að vera með grunnáskrift sem kostar 23 GBP á mánuði og leiga á Roku myndlykli kostar 2.790 kr. Hægt er að byggja ofan á grunnáskriftina viðbótarpökkum og sérlausnum sem hentar þínum þörfum. 

SJÓNVARPSPAKKAR USA

GRUNNÁSKRIFT - 6.790 kr

  • Allur nauðsynlegur búnaður innifalinn

  • Roku Channels með fjölbreyttu úrvali efnis

  • Tímaflakk – horfðu þegar þér hentar

  • VOD – fjöldi þátta og mynda á þínu eigin hraða

HULU - 18,99 USD

Hulu býður upp á fjölbreytt úrval sjónvarpsefnis í Bandaríkjunum. Þar finnur þú bæði vinsælar sjónvarpsseríur, nýjustu þættina beint frá bandarísku sjónvarpsstöðvunum, spennandi kvikmyndir, heimildarmyndir og Hulu Originals sem framleiddar eru sérstaklega fyrir áskrifendur.

Hulu hentar öllum aldurshópum.


Fyrir þá sem vilja meira er hægt að bæta við Hulu + Live TV, sem veitir aðgang að tugum bandarískra sjónvarpsstöðva, íþróttum, fréttum og afþreyingu í rauntíma.

Með Hulu færðu fullkomið frelsi í afþreyingu – allt á einum stað.

PEACOCK - 16,99 USD

Peacock er streymisveita frá NBC Universal sem býður upp á fjölbreytt úrval af efni fyrir alla fjölskylduna. Þar finnur þú vinsælar NBC seríur, kvikmyndir úr kvikmyndasafni Universal Pictures, spennandi Peacock Originals, íþróttir í beinni og fréttir í rauntíma.

Með Peacock færðu aðgang að þekktum þáttum eins og The Office, Brooklyn Nine-Nine, Law & Order og Yellowstone, auk nýrra kvikmynda og úrvals íþróttaefnis.

Peacock er hannað til að veita notendum einfalt og þægilegt aðgengi að bandarískri afþreyingu, hvort sem það er í sjónvarpinu, tölvunni eða snjalltækinu þínu.

Allt það besta úr Hollywood og íþróttaheiminum, á einum stað.

PARAMOUNT - 12,99 USD

Paramount+ er streymisveita frá Paramount Global, sem sameinar það besta úr bandarísku afþreyingarlífi.

 

Hér færðu aðgang að fjölbreyttu efni frá CBS, Showtime, MTV, Nickelodeon, Comedy Central, BET og Paramount Pictures – allt á einum stað.

Á Paramount+ finnur þú nýjustu og vinsælustu þættina, klassískar seríur, stórmyndir beint úr Hollywood og fjölskylduvænt efni fyrir börn. Þú getur líka notið beinna íþróttaviðburða, þar á meðal NFL, UEFA Champions League og golfmót PGA Tour.

Paramount+ býður upp á blöndu af skemmtun, drama, íþróttum og spennu og aðgengilegt í sjónvarpi, tölvu og snjalltækjum.

SLING - 45,99 USD

Sling TV er vinsælasta streymisþjónusta Bandaríkjanna fyrir beinar sjónvarpsútsendingar. Sling býður upp á fjölbreytt úrval stöðva í rauntíma og þar á meðal ESPN, CNN, AMC, TNT, Discovery, NBC, FOX og margar aðrar.

Sling TV býður upp á tvo pakka:

  • Sling Orange – hentar vel fyrir íþróttaáhugafólk og fjölskyldur, með stöðvum eins og ESPN, Disney Channel og CNN.

  • Sling Blue – leggur áherslu á fréttir, kvikmyndir og afþreyingu, með stöðvum eins og FOX, NBC, Bravo og Discovery.

Þú getur líka sameinað pakkana og fengið aðgang að yfir 40+ stöðvum samtímis. Auk þess býður Sling upp á fjölmarga viðbótapakka eins og t.d. Sports Extra, News Extra eða International Channels fyrir þá sem vilja meira úrval.

Sling TV er frelsi til að velja það sjónvarp sem hentar þér best.

ESPN -11,99 USD

ESPN er stærsta íþróttanet heims og býður upp á einstaka blöndu af beinum útsendingum, fréttum, greiningum og heimildarþáttum. Hér finnur þú allar helstu íþróttir — allt frá fótbolta, körfubolta og tennis til golf, hafnabolta, UFC, NFL og NBA.

Á ESPN færðu aðgang að daglegum íþróttaþáttum eins og SportsCenter, sérfræðiumfjöllun, og stóru viðburðunum sem skipta máli.

 

Fyrir þá sem vilja enn meira, býður ESPN+ upp á aukna þjónustu með:

  • Beinar útsendingar úr fjölmörgum deildum og mótum.

  • Sérvaldar seríur og heimildarmyndir eins og 30 for 30.

  • Aðgang að UFC-bardögum, college-íþróttum og MLB-leikum.

Hvort sem þú ert á ferðinni eða heima í stofu þá mun ESPN tryggja að þú missir aldrei af spennunni.

bottom of page