top of page
  • Facebook
  • Instagram
Wooden Chess Pieces

Taflvörur sem skapa hefð

Skák er meira en leikur, hún er hefð, hugsun og samvera. Skák sameinar kynslóðir og skapar dýrmætar stundir. Við hjálpum þér að finna rétta settið, hvort sem það er gjöf, fyrsta tafl barnsins eða veglegt sett fyrir heimilið.

12.jpg

Gjöf sem endist kynslóð eftir kynslóð

Fallegt skáksett er frábær gjöf, til afmæla, útskrifta, ferminga, jóla eða annarra tímamóta. Þetta er gjöf sem endist ævilangt og gengur jafnvel milli kynslóða. Vönduð viðarsett og klassísk hönnun gera skák að tímalausri eign sem heldur verðmæti sínu, bæði í notkun og tilfinningu.

​Tímalaus hönnun fyrir heimilið

Vandað taflsett sett er tákn um smekk og gæði. Vönduð viðarsett með fallegri áferð og klassískri hönnun setja hlýjan og fágaðan svip á stofu, skrifstofu eða sumarbústað. Fallegt taflborð á sófaborði mynda samtöl og stemningu. Þetta er skrautmunur sem hefur tilgang og lifir með heimilinu.

CHI7_CHI10_CHI12 (2) (Copy).jpg
CHI7_CHI10_CHI12 _arr.jpg

Gerðu taflið persónulegt

Við bjóðum upp á að láta grafa nafn, dagsetningu eða stutt skilaboð á platta sem er festur varanlega á taflborðið. Persónugert tafl er einstök gjöf við sérstök tilefni eins og fermingar, afmæli, útskriftir, brúðkaup eða önnur tímamót. 

 

Grafinn platti er fallega unnin og skrúfaður tryggilega fastur á borðið þannig að merkingin verður hluti af settinu til framtíðar.

bottom of page